12.12.2007 10:11:52 / Berti
Hvert eru þessi blessuðu jól að fara?? Maður er að verða klikkaður á allri þessari jólaörtröð að hálfa væri hellingur. Ekki nóg með það að jólin koma alltaf fyrr með hverju árinu heldur eru jólin búin að breytast í eitthvað tískufyrirbrigði. Það vildi svo til að ég var staddur inní blómaval einn laugardaginn að skoða jóladót og svona þegar ég lít augum á eitt ógeðslegasta jólatré sem ég hef nokkurn tímann litið á.... Um var að ræða gervijólatré (sem geta verið mjög fín) en þetta ákveðna jólatré var SVART!!! Ég fylltist viðbjóði og hörlaði á gólfið og allir í kringum mig horfðu á mig eins og ég væri kjáni... Reyndar var líka hvítt tré þarna sem sýnir það að jólaliturinn eftir 1-2 ár verður svartur og hvítur í staðinn fyrir rauðan og grænan. En þetta svarta tré mun sitja í mér til eilífðar... Kannski er ég gamaldags að vilja lifandi jólatré í stofuna mína en er þetta það sem koma skal í framtíðinni?? Svört jólatré??? Tja maður spyr sig...
Lífið í Reykjavíkinni gengur sinn vanagang og um hverja helgi er maður að skemmta sér í menningarlífi borgarinnar. Hver einasta helgi endar með fylleríi og djammi þótt planið manns sé allt annað. Eftir hverja einustu helgi hefur maður ætlað að vera í fríi frá djammi helgina eftir en þá kemur alltaf eitthvað upp eins og jólaglögg hjá vinnunni (sem maður var sósufullur í ), afmæli hjá vini (sem maður var sósufullur í ), vinahittingur (sem maður var sósufullr í ) eða þá að einhver annar segir "Ég nenni ekki að vera fullur einn.. DREKKTU". Ég er farinn að sjá fram á það að þetta endi bara á einum stað...
Berti íhugar jólin...fullur!!
»
21.10.2007 22:48:19 / Berti
Uppskeruhátíðin var síðustu helgi og má með sanni segja að hún hafi verið hreinasta snilld!! Allt byrjaði þetta á bílferð norður á föstudeginum eftir vinnu þar sem Konni bróðir keyrði bílaleigubíl og ég minn bíl og var ég með kisurnar með mér í bíl. Fressinn því miður slefaði mig allann út og farþegasætið... Ekki alveg að fíla bílferðir. Á laugardeginum var síðan farið á æfingu þar sem gamlir ungir mættust í leik uppá bjór og var ég í eldra liðinu og fórum við með sigur af hólmi þar sem kallinn skoraði sigurmarkið!!
Nú að leik loknum var haldið á bingó með familíunni í oddfellowhúsinu en því miður vannst enginn vinningur!! Valdi greinilega ekki rétt spjald... Þurfti reyndar að skreppa frá bingói á fund með liðinu þar sem kom í ljós að ég er sá eini sem ekki hefur skrifað undir nýjann samning hjá Tindastóli og er það vegna þess að mig langar til að prófa e-ð nýtt. En um kveldið var síðan uppskeruhátíðin þar sem mikið var hlegið og drukkið. Það endaði síðan á því að allir fóru á ball með Pöpunum og sumir fóru heim og voru aðeins of fullir og enduðu í sófanum hjá Snorra... Nefni engin nöfn!!
Þessi helgi einkenndist af fríum bjór og afmæli. Snorri kom í bæinn og ég náði að draga hann og Magga í afmæli og svo á djammið. Ekkert meir um það að segja.
Skólinn gengur ágætlega og í þarnæstu viku mun ég fá vikufrí vegna starfsdaga eða e-ð svoleiðis!! Fínn skóli... Alltaf frí og svo ferð til ísafjarðar og svona...
Berti djammar aðeins meira..
»
08.10.2007 12:59:46 / Berti
Jæja það hlaut að koma að því að maður bloggaði og svo að þú vitir Konni þá er ég ekki fluttur til Ísafjarðar en meira um það á eftir..
Það er orðið svo langt síðan að ég bloggaði og margt búið að gerast að hálfa væri hellingur. Það þarf varla að minna á það að Tindastóll komst upp í 2. deild með sigri á Ísafirði í úrslitaleik um hvaða lið fengi síðasta sætið laust þar og var mikill fögnuður að því loknu. Eins og vanalega var partý hjá Snorra og læti og meira að segja Bjarki gerðist kærulaus og datt í það... Allsvakalegt!! En uppskeruhátíðin er núna næstu helgi og ég veit að hún á eftir að verða skemmtileg og menn að búa til mynd og læti þannig að ég bíð spenntur.
Fékk nýjann saxófón sem kostaði 10 dollara á ebay. Fór að skoða ebay til að athuga hvað almennilegur fónn kostar og ég get sagt ykkur að hann kostar um 200 þúsund kall en þar sem ég var að skoða um sá ég einn bláann fón sem kostaði 10 dollara eða um 600 kall.... Ég hugsaði með mér að þetta hlyti nú að vera drasl en pabbi sagði mér að kaupa hann og ef svo væri að þetta væri drasl þá henti ég honum bara!! Málið var að hann kom alla leið frá Kína þannig að sendingarkostnaðurinn var um 20 þúsund kall og svo var það tollurinn þannig að allt i allt kostaðin fónninn rétt rúmlega 30 þúsund kall. En viti menn... Hann virkar og það er bara nokkuð vel sloppið að borga svona mikið fyrir nýjann saxófón þar sem minn var nú ekki upp á sitt besta!!
Var á Ísafirði núna síðustu viku í skólaferðalagi. Ferðalag þetta innihélt: drykkju, námskeið, meiri drykkju, kynnast hinum nýnemunum, drykkju og drykkju!!! Já það var mikið um drykkju í þessari ferð og maður tekur þessa viku til að jafna sig á fyrrverandi drykkju. Ég komst að því að Ísafjörður er algjörlega dauður bær því þar sem við, um 20 manna hópur, vorum á gistiheimili náðum við að afreka það að fá lögguna til okkar hvert einasta kveld vegna hávaða!! Hávaðinn var að mínu mati ekki mikill þar sem maður heyrði ekki í tónlistinni fyrir utan húsið en einhverjir heyrðu í henni og kvörtuðu. Reyndar kom sjúkrabíllinn eitt kveldið af því að einn hafði drukkið einum of og ældi út allt herbergið sitt.. Ekki geðsleg lyktin sem eftir var ferðarinnar.
Jæja nóg í bili norður næstu helgi að fagna með liðsfélögum og læti þangað til...
Berti spilar á nýjann fón!!
»
27.09.2007 12:02:15 / Berti
Já er á leiðinni til Ísafjarðar þannig að miklu betra blogg kemur eftir næstu viku því maður er svo ótrúlega busy hérna í stórborginni!! Biðst velvirðingar á bloggleysi...
Berti bloggar seinna
»
16.08.2007 20:17:44 / Berti
Usss versló
var snilld.. Það sem stóð einna hvað mest uppúr í þeirri ferð
var einmitt fótboltinn sem ég og Pálmi fórum í á
sunnudagsmorgninum. Við fórum á gervigrasvöllinn sem er við
kirkjuna á Akureyri og fórum í miðju. Þar komumst við að því
að ég er chippmeistari þegar ég er fullur því ég gerði ekkert
annað en að chippa yfir Pálma hægri vinstri. Annað sem stóð
uppúr í þessari ferð var gaurinn sem einokaði bunurnar í
sundi. Þeir sem vita hvaða bunur ég er að tala um þá var þar
gaur sem lá í mjög svo grófri stellingu undir báðum bununum.
Frekar klisjulegt.. En ég vil þakka þeim sem maður hékk með í
þessari ferð og sérstaklega Pálma og Frigga fyrir notalega
gistingu og skemmtun.
Núna er ég í
vinnunni og er þetta síðasta vaktin mín. Svo verður haldið til RVK
og ráðist inná Konna bróður og plantað sér í sófann eða á dýnu á
gólfinu hjá honum. Þar mun ég vera næsta ár að reyna að mennta sig
meira en maður hefur þegar gert. Hlakka geðveikt til.
Berti RVK here I
come!!
»
03.08.2007 01:03:59 / Berti
Greinilegt að
flestir ætla til Akureyrar um versló en þangað ætla ég að fara með
góðum vinahóp á laugardeginum. Reyndar er búið að banna unglingum á
aldrinum 18-23 að tjalda á tjaldsvæðinu en maður reddar því
einhvern veginn... Á reyndar ekki tjald þannig að ég veit ekki
alveg hvernig ég á að sofa... Planið eins og það er núna er
að vaka alla nóttina og skemmta mér konunglega. Ef svo vill
til að ég vil sofna þá bara sofna ég þar sem ég
stend!! Fólk er ekki eins spennt fyrir þessari helgi eins og
hefur verið. Ætli menn séu bara ekki að fullorðnast og er hætt að
pæla í þessari helgi.. En ég ætla að byrja helgina á fylleríi í
faðmi fjölskyldunnar!! Jú skemmtikveld hjá Hönnu systur og Vigni
mági og nú þegar Konni bróðir er kominn heim þá verður þetta
fjör. Ætli maður reyni ekki að plata þau öll í drykkjuleik til að
skapa stemmningu...
Jæja það eru rúmlega
2 vikur þangað til að maður hverfur héðan af króknum og í
höfuðborgina eða borg dauðans eins og ég vil kalla hana að læra í
LHÍ. Hlakka geggjað til að byrja í skólanum og mun bróðir minn hýsa
mig til að byrja með í Graðastrætinu.. Hef heyrt að þetta sé
graðasta stræti í RVK!!! Ekki alveg...
Berti AK um
versló..
»
24.07.2007 02:44:17 / Berti
Ég get svo
svarið fyrir það að þessi næturvinna er gjörsamlega að taka
völd á lífi mínu... Það eins sem maður gerir er að sofa og
sofa aðeins meira. Núna um helgina var djamm með mfl og
byrjuðum við á því að fara í golf þar sem maður sýndi
snilldartakta við að sneiða kúluna að ofanverðu. Því miður
þurfti Bibbi að bíta í það súra epli að lenda í síðasta sæti
með mér og reyndar Jóa færeying og Guðna líka og fengum við
sultu að launum fyrir að vera mestu sulturnar!! En eftir það
var haldið á Kaffi Krók og fengið sér einn hammara eða burger
eða eins og Danni vill segja það "Búrger" og var spjallað um
tilþrif dagsins. Kíkt var í stólapartý til Danna þar sem hann
átti engin húsgögn þurfti maður sjálfur að koma með stól. Ég
sat nú ekki mikið á mínum kolli en engu að síður fínt partý..
Fengum nokkrir hugmynd af því að breyta þessu í rústpartý en
við slepptum við það en allavega eftir partý var kíkt á Mæló
þar sem Spútnik var að spila. Ég, Ebbe og Jón fórum aðeins
fyrr til að taka nokkra Billiardleiki og endaði það með því
að ég græddi 1000 krónur því Jón skaut hvítu kúlunni niður
þegar hann átti bara svörtu eftir... fínt fyrir mig en ballið
var alveg ágætt og mikið af liði þarna sem maður sér aldrei
aftur!! Eftirpartý hjá Snorra (og Bibba) eins og
vanalega og komið var heim um 5 leytið um morguninn!! Núna
það sem maður ætlaði að segja með svefninn þá sofnaði ég um
þetta leytið eftir djammið og vaknaði ekki fyrr en 11 tímun
síðar... allt í lagi með það engin þynnka og svona... En að
fara að sofa um kveldið klukkan 1 og vakna ekki fyrr en 11
næsta morgun er einum of... Þarna voru farnir 21 tímar í
svefn sem hefðu getað nýst e-ð. Það sem meira er að ég hefði
getað sofið meira og ég gerði það seinna um daginn!!! Ég
er alvarlega að íhuga að kíkja til læknis út af þessum svefni
mínum því þetta getur ekki verið eðlilegt. Fyrir þá sem eru
að íhuga starfsframa sinn í framtíðinni þá mæli ég sko ekki
með næturvörslu því hún er búin að eyðileggja "Tan workoutið"
mitt og ég er eins hvítur og ég var í vetur... Frekar fúlt!!
Já og svo sefuru allann daginn.....
Kisurnar stækka
hratt og núna eru þær farnar að klifra um allt og hlaupa út um
allann skúr. Þvílíkur hávaði sem getur komið frá þeim að hálfa væri
nóg.. En þetta eru yndisleg dýr!!
Berti sefur og sefur
og sefur....
»
09.07.2007 21:42:11 / Berti
Mikil gleði
var hjá mér í síðustu viku þegar ég fékk símhringingu frá
vinkonu minni sem tjáði mér það að vinkona hennar hafi hringt
í hana og beðið hana um að segja mér að það væri búið að
finna jakkann minn sem var stolið á balli á Hofsósi. Mikið
var ég ánægður að vera búinn að fá jakkann minn aftur með
kortaveskinu mínu í. Oh happy day..
Var í RVK um
helgina. Leikur á móti Hvíta Riddaranum sem vannst auðveldlega á
föstudeginum og svo var hitt vini og vandamenn hina dagana með smá
versleríi.. Náði að versla mér föt og einn tölvuleik sem ég hef
heyrt að sé nokkuð góður og heitir hann God of War fyrir PS. Náði
einnig að panta mér takkaskó í gegnum netið í síðustu viku þannig
að maður er vel settur fyrir komandi átök í boltanum og
svona.
Borg óttans stækkar
ört og mátti sjá á hverju horni menn vera að vinna en það aftrar
mér ekki frá því að fara þangað í skóla næsta vetur og fá smá
tilbreytingu í líf mitt. Það er alltaf gott að skipta um umhverfi
af og til.
Kisurnar stækka ört
og nú þegar er búið að panta einn þannig að ef ykkur langar í litla
sæta kisu þá getiði hringt í mig og vælt í mér þangað til að ég
segi já eða e-ð í þá áttina!!!
Berti
glaður
»
26.06.2007 01:17:16 / Berti
Úff 2 helgar
liðnar og mikið sem hefur gerst.. Tindastólshátíðin var
snilld í einu orði sagt nema hvað skemmtiatriðin hefðu mátt
vera aðeins styttri. En engu að síður mjög skemmtilegt kveld
sem endaði í broti heima hjá Snorra þar sem Haukur nokkur
Skúlason og Inga Birna Friðjónsdóttir náðu að brjóta
sófaborðið hans Snorra... Náttborðið hans Bibba og í partýi
sem allar stjörnurnar voru... Sem by the way eru útúr
klístraðar og merkilegar með sig að hálfa væri hellingur. Svo
var það næsta helgi en þar var um að ræða Jónsmessuhelgin
stóra sem endaði með balli á Hofsósi. Mikið af fólki og voða
fjör alveg þangað til í endann þegar ég sá að það var búið að
stela jakkanum mínum.. Og ekki nóg með að jakkinn hafi verið
horfinn þá var kortaveskið mitt í honum með debetkortinu mínu
og ökuskírteininu.. Man þvílíkur bömmer á góðu kveldi!! Ég
var víst ekki sá eini sem lenti í þessum hremmingum því
fleiri jökkum var stolið og verðmætin í þeim.. Þetta kennir
manni bara lexíu um að geyma ekki jakkann sinn í
fatahenginu!! Allavega ekki í félagsheimilinu í
Hofsós..
Þetta er orðið
svolítið svona djammblogg en það verður að hafa það.. Kisurnar eru
alveg við það að fara að labba þannig að á næstu dögum verður mikið
fjör í skúrnum og lítið um svefn... oh!!!
Berti fúll yfir
jakkastolningi..
»
16.06.2007 06:31:43 / Berti
Já 16. júní og
þetta verður dagur sumarsins.. Jú það er einmitt 100 ára
afmæli Tindastóls og hefjast leikar með knattspyrnuleik milli
Tindastóls og Skallagríms. Við í Tindastól munum leika í
nýjum búningum en þeir eru gulir og svartir á lit og eiga
þeir að líkjast fyrstu búningum okkar Tindstælinga. Eftir
leik þennann munu gamlar kempur taka fram skóna og sína
takta, karlar jafnt og konur. Að lokum verður svo matur og
skemmtiatriði og ball fylgir í kjölfarið með Geira og co. Það
eina sem ég vonast eftir er að það komi margir að horfa á
leikinn því síðast þegar það var mannmergð var geggjað gaman
að spila.
Kisurnar litlu eru
farnar að opna augun og þeir eru búnir að vaxa um helming á þessari
einu viku sem líf þeirra er búið að endast. Merkilegt
nokk!!
Búinn að vera mikið
í vinnunni undanfarið en það þýðir bara eitt... Money money
money!!! Vonandi að maður fái háar fúlgur næstu mánaðarmót. En í
vinnunni er ekki bara hangs og gaman ónei.. Löggan kom með einn
fullann um hálf 3 eina nóttina og vildi sá fá gistingu. Ég setti
hann í herbergi og hann sofnaði um leið og ég lokaði hurðinni. Um 5
leytið kemur maður og spyr "Kom löggan ekki með einn fullan áðan?"
ég svaraði játandi og að hann svæfi eins og klettur í herberginu
sínu. Maðurinn segir þá "já ég á að ná í hann því hann á að fara á
sjó klukkan 7." Frekar skondið þannig að ég hleypti kallinum inn
til að vekja þann fulla. Stuttu seinna kemmur kallinn og segir
"þetta þýðir ekkert hann steinsefur" og með þetta fór hann út.
Fulli kallinn hefur þá misst af þessum túr.... Tja þessir sjóarar
meiri kallarnir!!!
Berti hlakkar til
dagsins stóra.
»
08.06.2007 03:06:04 / Berti
Já hérna sit
ég á Fosshótel Áningu og skrifa í tölvuna og bíð eftir að
klukkan verði aðeins meira svo ég geti byrjað að skúra!!! Vá
ég er gjörsamlega búinn að snúa sólarhringnum við og það
hefur sína galla... já og kannski sína kosti þótt gallarnir
séu fleiri!!
Er að passa 2 kisur
fyrir Konna bróður og er það vegna þess að drengur er að flýja til
Ástralalalíu að hitta sínar vinkonur...Oj en allavega þá eru
kisurnar sistkyn, fress og læða, ekki nóg með það þá náði fressinn
að læðast í skjóðuna og fylla hana því læðan varð ólétt!! Nú hugsar
fólk "OJ þau eru sistkyni, hann er bróðir hennar" en því miður þá
virkar það ekki eins og hjá okkur mönnunum. Kisur gera það sem þær
vilja..... En núna í gær var læðan að eignast þessa líka 3 sætu
hnoðra og þar sem ég var að passa kisurnar þá leyfði ég læðunni að
gjóta í rúmið mitt. Reyndar var hún ofan á sænginni þannig að
ekkert fór á rúmið en sængin varð öll útötuð í blóði og vitleysu.
Núna liggur læðan heima og lætur litlu kettlingana totta á sér
mallann því jú þar eru spenarnir sem þeir ná mjólk út úr... Tja
svei mér þá!!
Leikur á morgun
(föstudag) á móti Hvöt og verð ég að segja að þetta verður hatræm
barátta milli góðs og ills.. Við erum góðir því við erum ekki með
svo marga útlendinga en Hvöt eru með 7 eða e-ð. Kannski var þetta
ljótt sagt en þeir verða bara að bíta í það súra epli að vera vondu
gæjarnir því ekki getum við verið þeir vondu því þá vinnum við
ekki.. Vá ég held að það sé komin snerta af geðveiki í mann á því
að vera svona oft á næturvöktum... Maður hefur ekkert að hugsa
um og býr til einhverja algjöra steypu.
Jæja
Adios.....
Berti með 5 kisur í
skúrnum...
»
02.06.2007 01:31:34 / Berti
Jæja núna er
ég í nýju vinnunni minni að blogga og læti.. Já ég er að
vinna á hótel Áningu sem næturvörður og maður hefur eiginlega
ekkert að gera!!! Mikið hefur gerst síðustu vikur hjá mér
eins og t.d. RVK ferð sem entist í viku, Íslandsmótið byrjað
á fullum krafti og við erum búnir að spila 2 útileiki og fá 4
stig sem telst nokkuð gott og svo má nefna fleira eins og
djamm og æfingar.
Það sem er næst á
dagskrá er náttúrulega 16. júní með öllu tilheyrandi og held ég að
það verði geggjuð skemmtun. Leikur fyrr um daginn og vonandi láta
allir sjá sig þar!!
Veit samt ekkert
hvað á að segja þannig að ég er bara farinn að skúra.
Berti að skúra í
nýja jobbinu...
»
11.05.2007 14:15:56 / Berti
Jæja kosningar
á morgun og Eiki Hauks ekki áfram í Evrovisijón... Skandall!!
Framsókn vann kosningu á síðunni minni með 43% atkvæða og
Sjálfstæðisflokkurinn var með 29%.. Hinir voru með
lítið!!
En síðasta helgi var
mjög fín.. Við kepptum æfingaleik á móti Dalví/Reyni og unnum 3-1.
Dejan, Snorri og Pálmi skoruðu og ég lagði upp marki á Pálma..
Góður!! En eftir leik var farið heim og borðað og svo til Snorra í
smá partý og hitað upp fyrir böll. Við enduðum á að fara í Árgarð
þar sem allir ungu krakkarnir voru og satt best að segja vissi ég
ekkert hvað ég var að gera þar. Eftir ball var farið í eftirpartý
til Snorra. Konni vildi eigi þyggja bjór og fór því heim að ná í
bjór og kom svo hjólandi niðureftir til Snorra... Klikkaður
kallinn. Við byrjuðum að horfa á Green street hooligans en allir
voru orðnir þreyttir og fóru heim nema Konni sem kláraði alla
myndina og hjólaði síðan heim... Dugnaður í kappanum!!!
Það er fyndið að sjá
muninn á stelpum og strákum hvað varðar eftirtekt. Ég ákvað eftir
mikla söfnun að raka af mér skeggið á sunnudagskveldið var. Á
mánudeginum fór ég á æfingu og einnig á þriðjudeginum. Á
þriðjudagskveldið bauð Snorri mér á rúntinn og það fyrsta sem hann
sagði var "Hva búinn að raka þig?" Þetta tók hann 2 daga að sjá.
Talaði einnig við Pálma á msn á miðvikudag og sagði honum að ég
væri búinn að raka mig og hann varð hissa... Ef þetta hefðu verið
stelpur þá hefðu þær sagt.."Hva minn búinn að raka sig, djöfull
ertu sexý!!" Kannski ekki sexý dæmið en þær hefðu tekið eftir þessu
strax... Fyndið!!
Berti rakaður og
fínn
»
04.05.2007 15:04:33 / Berti
Ég þoli ekki
þegar maður lendir í því að fara að blogga og svo veit maður
ekkert hvað maður á að segja... Samt er maður búinn að detta
svo ótalmargt í hugsem maður hafði ætlað að skrifa. Oh
well..
Íslandsmótið er að
fara að byrja hjá okkur í boltanum og getur maður með sanni sagt að
maður bíður bara spenntur eftir fyrsta leik en hann mun eiga sér
stað á Grenivík á móti Magna í bikarnum!! Æfingar komust upp á
hærra plan hjá okkur eða á svokallaðar nafir. Það er víst eina
grasrótin sem maður má sprikla á þangað til Bjössi vallarvörður
segir annað. Og vonandi að við fáum að fara á æfingarsvæðið sem
fyrst því nafirnar eru ekkert sérlega góðar eins og er.
Um síðustu helgi var
djammað og djúsað aðeins í 20 stiga hita og læti. Það lá við að
maður færi nakinn niður í bæ en til allrar hamingju gerði maður það
ekki. Á föstudeginum var farið niður í bæ með Snorr, Völu og
Sólborgu og má segja að það hafi verið eitt lélegasta djamm sem
maður hefur farið á. Það var eitt atriði sem reddaði kveldinu
aðeins og það var þegar ég og Sólborg vorum á leið heim... Við
ákváðum að stytta okkur leið í gegnum garða hjá fólki og það
byrjaði vel því á fyrstu girðingu var gat sem við löbbuðum í
gegnum, næst þurftum við að príla aðeins og Sólborg byrjaði að
príla þegar ég bauð henni aðstoð sem hún þáði. Tók ég þá undir
löppina á henni sem var ekki komin á grindverkið og ýtti. Úps...
Sólborg lá kylliflöt á grasinu hinu megin við grindverkið og sú var
ekki sátt við meðhöndlunina samt fyndið.. Þá var röðin komin að
mér. Ég ætlaði að vera töff á því og ætlaði að hoppa yfir með
aðstoð handa minna en það fór svo að löppin á mér flæktist í
grindverkið og lenti ég á bakinu hinu megin við grindverkið og það
var svo ótrúlega fyndið að ég lá þarna og hló í mínútu á eftir.. En
við náðum að komast heim heil á húfi.
Margir þekktir
kappar voru á stjá í bænum á laugardag og má þar nefna Sveinbjörn
Ásgrímsson og Guðjón Örn Jóhannsson en þessir menn þjálfuðu okkur í
fyrra og má með sanni segja að þeir stóðu sig virkilega vel í
drykkjunni!!! Sleikjandi eyru og læti... En samt sem áður gott
djamm og góð helgi. Næstu helgi er leikur á laugardag og aldrei að
vita nema að maður taki öl og tjútti í Ljósheimum eða annar
staðar..
Berti djamm og
dettingar
»
24.04.2007 20:02:14 / Berti
Jæja
langt er síðan maður bloggaði síðast og nú er kominn tími til
að maður skrifi örfáar línur.
Fyrst vil ég
benda á að loksins eru myndir komnar frá föstudagslanga djamminu
heima hjá Ingva og getið þið séð þær hér til
hliðar...
Ég hef einnig
ákveðið að raka mig ekki í ákveðinn tíma eða þangað til að ég nenni
ekki lengur að hafa skegg... Já ég er búinn að fullorðnast mjög með
þetta skegg og menn segja að ég sé kominn hátt upp í
fertugsaldurinn.
En annað... Ég hef
mikið pælt í einum hlut þessa dagana og það er að þegar maður
hugsar um ákveðna manneskju þá meina ég hugsa um hana eins og: ""
Hey langt síðan að maður hefur heyrt í honum/henni" eða "Hvað ætli
hann eða hún sé að gera þessa dagana". Vanalega eru þetta vinir eða
frændfólk þá svona 2-3 dögum seinna þá rekst maður á viðkomandi
manneskju eða hún hringir í mann!!! Ég hef lent í þessu allnokkrum
sinnum og hef verið að pæla hvort örlögin séu þarna á ferð eða
hvort ég sé endanlega orðinn bilaður.. Þetta er pæling.
Annað sem ég hef
lent í, aðallega hér á króknum, er að manneskja sem maður þekkir
alls ekki neitt kemur upp að mér og heilsar manni og talar við mann
eins og hann/hún hafi þekkt mig alla tíð... Það er alveg sama þótt
manneskjan sé full af áfengi eður eigi og svo næst þegar maður sér
manneskjuna þá yrði hún ekki á mann... Hvað er málið??? Getur
einhver sagt mér það??
Berti mikið í
pælingum
»
Síður:
1 2 3 ...
8